Ég er í innanhúsfótbolta einu sinni í viku og hópurinn sem spilar er nokkuð blandaður. Íslendingar, Svíar, Ítalir og svo hafa bæði Spánverjar og Portúgalar litið við. Við eigum síðasta tímann í húsinu og ég sé um lyklana og þarf því að vera síðastur út úr húsi, sem er í síðasta lagi hálftíma eftir að við erum búnir. Það er alltaf jafn gaman að bíða eftir Ítölunum, Spánverjunum og Portúgölunum. Ég vissi ekki að það væri hægt að eyða svona miklum tíma í hárið sitt. Þeir koma meira að segja með sínar eigin mini-hárþurrkur, voðalega sætar.
Ekki íslenskir karlmenn
mars 2, 2007 af DaðiStrákar
febrúar 17, 2007 af DaðiEins og ég sagði frá þá kíktu Atli og Salbjörg í heimsókn og kíktum við m.a. á Vasasafnið. Hérna er góð mynd af mér og Atla í fallbyssuleik.

Nörd
febrúar 14, 2007 af DaðiÉg skrapp upp í tölvuver í skólanum í dag til að skoða tölvupóstinn minn og um leið og ég settist niður heyri ég einhverja gaura tala um tölvuleikinn Quake. Eins og kannski einhverjir vita þá hef ég gripið í þann tölvuleik einu sinni eða tvisvar. Allavega, ég lít við og sé þessa tvo náunga sem líta út eins og algjörir klassískir nördar, ef maður myndi fletta upp nörd í myndorðabók þá væri mynd af þeim tveimur, heilsandi Vulcan style. Þeir voru að tala um Quake 4, Quake 3 og meira að segja Doom 3. Einum þeirra fannst meira að segja Doom 3 bestur, ha ha ha? Getiði ímyndað ykkur? Doom 3 bestur? Lol.
Mig langaði svo að standa upp og upplýsa þá og alla í tölvuverinu um fávisku þeirra og segja þeim að þeir væru að horfa á margfaldan Quake meistara, mann sem spilað hefur á meðal þeirra bestu í heiminum. Unnið þá bestu í heiminum.
“Hey n00bar, ég fór á CPL!!!”
En af einhverri óskiljanlegri ástæðu gerði ég það ekki.
Sälen
febrúar 5, 2007 af DaðiJæja þá er góð helgi búin. Atli og Salbjörg kíktu í menningar- og verslunarferð hingað til Stokkhólms en aðallega verslunarferð samt, H&M klikkar aldrei. Svo vorum við í dýrindis lambalæri hjá Bigga og Magney á laugardagskvöldinu, við mættum með lærið og þau sáu um meðlætið og stemmninguna.
Svo á að kíkja í viku skíðaferð til Sälen 31. mars til 7. apríl og var pantaður ljúfur skíðakofi með gufubaði og öllu tilheyrandi. Knútur frændi ætlar að fljúga út og koma hingað á bretti, bara snilld. Held reyndar að það sé ennþá laust pláss í kofanum þannig að ef þig langar í viku skíðaferð til Svíþjóðar láttu þá heyra í þér!
Annars er ekki margt annað að frétta annað en maður þarf að fara að senda út vinnuumsóknir en ég ætla að taka mér frí frá skólanum núna í vor og koma heim á klakann og vinna í a.m.k. ár, það verður fjör!
Later spader.
Ljúfa lífið
janúar 25, 2007 af Daði
Smá teaser fyrir Bandaríkjabloggið.
U, S and A
janúar 4, 2007 af DaðiÁ morgun leggjum ég og Stebbi af stað til Bandaríkjanna. Við fljúgum til Boston og fljótlega eftir það er leiðinni haldið til Santa Barbara þar sem við munum fá gistingu hjá félaga hans Stebba. Planið er einfalt: Golf og NBA leikir, restin reddast. Oh sweet mama.



Prófin búin
desember 18, 2006 af DaðiKem heim á miðvikudaginn!
G.I. Daði
desember 8, 2006 af DaðiNý rakarastofa opnaði á Valhallavägen í byrjun nóvember og kostar herraklippingin einungis 99 sænskar krónur. Um að gera að skella sér þangað einhvern tímann hugsaði ég, bara 99 krónur! Ég lét svo slag standa í dag þegar ég fór þangað í klippingu. Þessi hrikalegi Tyrkjarumur sem klippti mig virtist því miður ekki skilja mikið í sænsku en ég sagði honum að taka aðeins af því en að mig langaði að hafa eitthvað hár eftir, svona til að skella í einhverja ofur-hárgreiðslu. Hann virtist skilja þetta sem “leave no survivors” og framdi þjóðarmorð á hárinu á mér, ekki mikið eftir get ég sagt ykkur. Svo í lokin þegar hann spurði mig hvort þetta væri ekki fínt kinkaði ég bara kolli enda þorði ekki öðru, hann hefði ábyggilega skorið mig niður í kebab ef ég hefði mótmælt eitthvað.
Note to self: Ekki fara í jólaklippingu hjá Tyrkja aftur.
Hin eina sanna íþrótt
desember 5, 2006 af DaðiGerist ekki fallegra en þetta. Mæli með að þið hafið kveikt á hljóðinu þegar þið horfið á þetta myndband.
Ljúfa lífið
desember 4, 2006 af DaðiAlltaf gott að koma heim eftir mikinn próflestur og sjá heimabakaðar piparkökur og lussekatter hanga á hurðarhúninum. Að sjálfsögðu hékk þvotturinn líka tilbúinn og fínn.