Snilld

By Daði

Jæja þá er maður kominn aftur til Stokkhólms eftir frábæra skíðaferð en við komum aftur í bæinn síðastliðinn laugardag. Þetta var algjör snilldarvika, full af skíðum, gufu, bjór og góðum mat en Knútur frændi mætti einmitt á svæðið en hann er kokkur á Skólabrú. Baldur fór heim í gær en Knútur verður hér fram á fimmtudag. Hann handleggsbrotnaði reyndar á síðasta deginum, heppni í óheppni getur maður sagt. Þegar maður er brotinn á hægri þá er maður svoldið fatlaður og getur ekki gert mikið. Dæmi um það sem maður getur greinilega ekki gert er að sturta niður en það beið mín fallegur floater þegar ég kom heim úr skólanum í dag. Flottur Knútur!

2 svör to “Snilld”

  1. Andri segir:

    Það er ekki oft sem maður hlær upphátt í tölvunni, sérstaklega vinsælt á bókasafninu í VRII. Maður þyrfti að venja sig á að segja bara lol eða rofl því þetta var klárlega rofl moment.

  2. Baldur segir:

    HAHA ég hló líka!

Skildu eftir svar