Archive for apríl, 2007

Blogg

apríl 21, 2007

Djöfull nenni ég ekki að skrifa neitt. Þeir sem vilja vita hvað er að frétta vinsamlegast hringið í mig.

Mæspeisaður

apríl 11, 2007

Andskotinn, Ari sigraði mig að lokum. Ég skráði mig á MySpace í gær, www.myspace.com/dadjan to see the glory. Á eftir að pimpa þetta samt. Ég skráði mig þarna samt aðallega til að skrá mig í Félag íslenskra Daða! Jæja, vill einhver vera vinur minn?

Snilld

apríl 10, 2007

Jæja þá er maður kominn aftur til Stokkhólms eftir frábæra skíðaferð en við komum aftur í bæinn síðastliðinn laugardag. Þetta var algjör snilldarvika, full af skíðum, gufu, bjór og góðum mat en Knútur frændi mætti einmitt á svæðið en hann er kokkur á Skólabrú. Baldur fór heim í gær en Knútur verður hér fram á fimmtudag. Hann handleggsbrotnaði reyndar á síðasta deginum, heppni í óheppni getur maður sagt. Þegar maður er brotinn á hægri þá er maður svoldið fatlaður og getur ekki gert mikið. Dæmi um það sem maður getur greinilega ekki gert er að sturta niður en það beið mín fallegur floater þegar ég kom heim úr skólanum í dag. Flottur Knútur!