Archive for febrúar, 2007

Strákar

febrúar 17, 2007

Eins og ég sagði frá þá kíktu Atli og Salbjörg í heimsókn og kíktum við m.a. á Vasasafnið. Hérna er góð mynd af mér og Atla í fallbyssuleik.

Nörd

febrúar 14, 2007

Ég skrapp upp í tölvuver í skólanum í dag til að skoða tölvupóstinn minn og um leið og ég settist niður heyri ég einhverja gaura tala um tölvuleikinn Quake. Eins og kannski einhverjir vita þá hef ég gripið í þann tölvuleik einu sinni eða tvisvar. Allavega, ég lít við og sé þessa tvo náunga sem líta út eins og algjörir klassískir nördar, ef maður myndi fletta upp nörd í myndorðabók þá væri mynd af þeim tveimur, heilsandi Vulcan style. Þeir voru að tala um Quake 4, Quake 3 og meira að segja Doom 3. Einum þeirra fannst meira að segja Doom 3 bestur, ha ha ha? Getiði ímyndað ykkur? Doom 3 bestur? Lol.
Mig langaði svo að standa upp og upplýsa þá og alla í tölvuverinu um fávisku þeirra og segja þeim að þeir væru að horfa á margfaldan Quake meistara, mann sem spilað hefur á meðal þeirra bestu í heiminum. Unnið þá bestu í heiminum.

“Hey n00bar, ég fór á CPL!!!”

En af einhverri óskiljanlegri ástæðu gerði ég það ekki.

Sälen

febrúar 5, 2007

Jæja þá er góð helgi búin. Atli og Salbjörg kíktu í menningar- og verslunarferð hingað til Stokkhólms en aðallega verslunarferð samt, H&M klikkar aldrei. Svo vorum við í dýrindis lambalæri hjá Bigga og Magney á laugardagskvöldinu, við mættum með lærið og þau sáu um meðlætið og stemmninguna.

Svo á að kíkja í viku skíðaferð til Sälen 31. mars til 7. apríl og var pantaður ljúfur skíðakofi með gufubaði og öllu tilheyrandi. Knútur frændi ætlar að fljúga út og koma hingað á bretti, bara snilld. Held reyndar að það sé ennþá laust pláss í kofanum þannig að ef þig langar í viku skíðaferð til Svíþjóðar láttu þá heyra í þér!

Annars er ekki margt annað að frétta annað en maður þarf að fara að senda út vinnuumsóknir en ég ætla að taka mér frí frá skólanum núna í vor og koma heim á klakann og vinna í a.m.k. ár, það verður fjör!

Later spader.