Archive for október, 2006

Pumping Iron

október 31, 2006

Maður er alltaf jafn ánægður með sjálfan sig þegar maður situr í gufunni eftir að hafa mætt í ræktina 08:00 og tekið vel á því.

Nörd

október 29, 2006

Mamma og pabbi eru búin að vera í heimsókn yfir helgina og búa þau í slottinu mínu, heilir 24 fermetrar eða hvað það nú er. Mikið H&M um helgina get ég sagt ykkur, miiikið H&M.

Ég og mamma fórum niður í bæ í gær að versla á meðan pabbi varð eftir og vann að doktorsverkefninu sínu. Við ákváðum eftir smá rölt í Gallerian (lítil verslunarmiðstöð niðri í miðbæ) að skipta okkur upp og hittast svo aftur eftir tæpan klukkutíma. Flott, þá fæ ég að sjá eitthvað annað en sjöl og brjóstahaldara. Ég rölti eitthvað um og man allt í einu eftir því að Pro Evolution Soccer 6 var að koma út og það hlýtur að vera hægt að prufa hann í tölvuleikjabúðinni. Ég skelli mér þangað og viti menn, eitt stykki PES6 í gangi á Xbox 360! Ég gríp eina fjarstýringu og byrja að spila. Eftir svona 5 mínútur heyri ég einhvern segja “vågar du spela mot mig?” (“þorirðu að spila á móti mér?“) með mjög sveittri röddu. Ég sný mér við og sé þennan litla feita tölvunörd í World of Warcraft peysunni sinni sem ætlar sko aldeilis að rústa mér, aulanum, fyrir framan vin sinn. Eins og sumir vita (Andri, Alli og Helgi, aðallega Helgi samt) þá er ég bestur í PES þannig að nördinn átti ekki von á góðu. Ég valdi Man Utd (go Rooney!) og strákurinn Arsenal. Leikurinn byrjar með stórskotahríð hjá mér og allan fyrsta hálfleik er ég í sókn en næ ekki að setja neitt. Það besta við leikinn var að lúðinn vældi í hvert einasta skipti sem honum gafst færi á (brot á honum, brot á mér, hornspyrna osfrv.) sem gerði leikinn en skemmtilegri. Eftir fyrri hálfleik ákvað ég að ég þyrfti nú að setja mark, gat ekki tapað fyrir þessum sveitta gaur. Það gekk nú ekki alveg eftir en gerpið fékk skyndisókn og setti hann með Henry, andskotinn. Eftir þetta ligg ég í sókn og hann vælir stanslaust. Mér er ekki farið að lítast á blikuna þegar komið er á 80. mínútu og ég er ekki búinn að skora. Skelli inn super-sub nr. 1, Solskjær, og vonast til að hann fái boltann í fæturnar. Þegar komið er í uppbótartíma er nördinn farinn að glotta óþarflega mikið og ég næstum búinn að gefa upp alla von… En heyrðu, stungusending á Solskjær! Þetta gæti gengið… ooog Solskjær skorar stöngin inn!! Hahahaha, litli strákurinn fer næstum því að gráta og félagi hans á ekki til aukatekið orð.

Þeir taka miðju og dómarinn flautar til leiksloka um leið, alltaf jafn skemmtilegt! Framlengingin var nú frekar tíðindalaus þangað til í síðari hálfleik þegar Rooney fær hann fyrir utan teig og ég smelli honum upp í skeytina, enn og aftur gaman að sjá strákinn gráta úr sér augun. Leikurinn endar svo 2-1 fyrir mér og hann tekur í höndina á mér með góðan fýlusvip (það er svo gaman að vinna). Helgi við þurfum að spila þennan leik í jólafríinu!

Ég tala íslensku

október 26, 2006

Þegar ég var á Oktoberfest um daginn þá hitti ég þennan unga mann:

Hann hafði verið á Íslandi í tvær vikur árið 2002 í þeim tilgangi að læra íslensku. Til þess sótti hann eitthvað námskeið sem hann sagði þó hafa verið frekar lélegt, þess vegna fór hann út á hverju kvöldi og spjallaði við Íslendinga í biðröðum inn á skemmtistaði eða inni á pöbbum. Það er óhætt að segja að hann hafi náð tungumálinu frekar vel en hann talaði ótrúlega góða íslensku, 99% rétt málfræði og mjög góður orðaforði. Svo hitti hann líka Auði Laxness hér en kvartaði undan því að hún vildi bara tala dönsku við hann. Svo talaði hann reyndar líka fullt af öðrum tungumálum, þýsku (ég hélt fyrst að hann væri Þjóðverji), latínu og eitthvað meira sem ég man ekki eftir. Ég sagðist gefa honum símann þinn, Atli Freyr, ef hann kæmi aftur á klakann. Ég veit ekki afhverju en ég held að þið eigið sitthvað sameiginlegt.

Kvikmyndaleikur

október 25, 2006

http://www.stationerymovies.com/

Sveinbjörn sendi þennan skemmtilega leik á mig og ég gat giskað á 17 kvikmyndir sjálfur. Hversu mikið movie buff ert þú?

The Aleksey Vayner CV Video

október 25, 2006

Hahahaha, er hægt að vera meira sleezy og hallærislegur?

Game Over

október 23, 2006

Kannist þið við það þegar internetið klárast? Maður er kannski að browsa fotbolti.net í fimmta skiptið á kortéri þegar maður áttar sig á því að maður sé búinn að skoða allar síðurnar á netinu. Allar. Þetta er svo fáránlegt því auðvitað eru til fleiri síður á netinu. En samt getur maður einhvern veginn ekki fundið neina sem manni langar að skoða, ekki EINA andskotans heimasíðu.

Nú finnst mér gaman að körfubolta og því er auðvelt að hugsa sér að ég gæti haft gaman af því að skoða síður um körfubolta. Hvernig væri þá að kíkja á NBA.com? Nei djöfull ég var búinn að skoða hana svona þrisvar. Fótbolti? Já nei ég var búinn að skoða fotbolti.net… E-mail? Búinn að skoða öll þrjú. Hvernig væri nú að fylgjast með fréttunum? Afhverju uppfærir enginn djöfull mbl.is andskotinn hafi það?

Svona heldur þetta áfram og maður endar á því að skoða einhverjar 10 heimasíður svona þúsund sinnum og svo kórónar maður þetta í einhverri hringavitleysu á einhverjum bloggum sem maður nennir engan veginn að lesa og fer svo að sofa svona tveimur klukkutímum of seint og mætir vel myglaður í fyrirlesturinn klukkan 08 daginn eftir eða mætir bara ekki (gerist nú aldrei… haaa). Eða nöldrar á blogginu.

Sem betur fer er ég í fríi á morgun.

Ómannúðlegt

október 21, 2006

Hvernig er hægt að vera með próf á laugardegi frá kl. 08-13? Ég fór næstum því að gráta í morgun þegar ég vaknaði og sá að klukkan var 06:50. Ég held bara að ég hafi aldrei vaknað á laugardegi og séð tölustafina 06 á klukkunni.

Héðan í frá munu allar mínar fyrirsagnir byrja á Ó.

Ótrúlegt

október 19, 2006

Afhverju er það alltaf þannig að þegar maður kemur heim og er að opna útidyrahurðina (eða jafnvel aðeins fyrr) þá sé eins og það opnist fyrir allar flóðgáttir og maður þarf að hafa sig allan við að komast inn á klósett áður en allt gutlast niður buxnaskálmarnar?

Eða er það bara ég? Ef svo, vandræðalegt…

Welcome to India

október 15, 2006

Þetta er bara klassík, of fyndin klassík.

Prófalestur

október 14, 2006

Bööö.